Borði

Félagasamtök

Karlmenn og krabbamein

Íslenskir karlmenn eru hörkutól sem telja ekkert bíta á sér en það reynist ekki alltaf rétt. Karlar þurfa líkað huga að heilsunni, Kiwanisfélagið Ós í samstarfi við Krabbameinsfélag Suðausturlands munu halda kallafund til að auka vitund þeirra um eigin heilsu. Það er alltof algengt að karlar þekki ekki inn á heilsumál karlmanna, vanræki eigin heilsu og verði fyrir óþarfa heilsutjóni af þeim sökum. Til að bæta úr þessu bjóðum við körlum að koma og fræðast af Guðjóni Haraldssyni dr.med í skurðlækningum , sem mun halda erindi um karlaheilsu og í framhaldinu svara fyrirspurnum. Boðið verður uppá súpu og kaffi (aðrar veitingar eru á eigin vegum), góða karla stemmingu þar sem aðeins körlum er boðið og ræða málin sín á milli. Við leggjum áherslu á að karlar frá fertugu og eldri nýti sér þetta tækifæri . Þegar menn eru komnir yfir fertugt aukast líkurnar á því að fá krabbamein og heilsan byrji að láta undan. Því er mikilvægt að þekkja einkenni og vera meðvitaður um eigin heilsu , en það dregur úr líkum á heilsubresti. Við höldum fundinn á Víkinni fimmtudaginn 29. mars kl. 20:00, allir karlar eru velkomnir.
 

Árlegt páskaeggja bingó Kiwanisklúbbsins Ós

Árlegt páskaeggja bingó Kiwanisklúbbsins Ós verður haldið 7. apríl kl 14.00. Páskaeggjabingóið verður haldið að venju í Nýheimum. Verða mörg glæsileg páskaegg í boði fyrir heppna bingó spilarara. Vonast Kiwanismenn til að sem flestir sjái sér fært að koma og gera sér glaðan dag og reyna að vinna glæsilegt páskaegg. Sælgætisgerðin Freyja er styrktaraðili með páskaeggin í ár, eins og í fyrra, en þau hafa þótt mjög ljúffeng. Verði bingóaspjalda er stillt í hóf og er gott að spila léttan páskaleik á laugardegi. Allur ágóði bingóins fer í styrktarsjóð Kiwanisklúbbsins Ós.
   

Kiwanisþing 2012

Þingnefnd 42. umdæmisþings býður þingfulltrúa, maka og aðra Kiwanisfélaga velkomna í tónlistarbæinn Reykjanesbæ á 42. umdæmisþing Kiwanis-umdæmisins Ísland – Færeyjar, 14. – 16. september 2012. Þingsetning fer fram, föstudaginn 14. september í Keflavíkurkirkju og „Opið hús“ verður í Safnaðarheimilinu að setningu lokinni. Í hinu sögufræga félagsheimili Stapa fer fram fræðsla verðandi embættismanna, föstudaginn 14. september og sjálft Umdæmisþingið, ásamt lokahófi, laugardaginn 15. september. Ársfundur Tryggingasjóðs Kiwanis verður í Kiwanishúsinu í Keflavík, föstudaginn 14. september og þar verða líka stjórnarskipti í Umdæminu Ísland – Færeyjar, sunnudaginn 16. september. Þá verður boðið upp á spennandi og skemmtilega ferð fyrir maka þingfulltrúa og aðra gesti, laugardaginn 15. september. 
Þeim sem vilja njóta dvalarinnar í Reykjanesbæ, er boðið upp á fjölbreytt úrval gistimöguleika. Dagskrá þingsins, gistimöguleikar og aðrar upplýsingar er hægt að nálgast á vef þingnefndar http://kiwanis.is/sidur/umdaemisthing-2012 Þingnefndin leggur metnað í að þingið verði árangursríkt, fræðandi, skemmtilegt og glæsilegt. Að sjálfsögðu verður boðið upp á mikið af tónlist þessa daga og munu lög frá fyrri tíð í Keflavík og Njarðvík svífa yfir vötnum.
   

Groddarakvöld Kiwanisklúbbsins Ós

Nú hefur skemmtinefnd Ós undir stjórn Hauks Sveinbjörnssonar unnið baki brotnu í marga
mánuði til að undirbúa Groddarakvöld. Stefnt er að halda Groddarakvöld 17
febrúar kl 20.00. Þar verður á boðstólum sérvalið hangikjöt sem Haukur hefur
reykt sjálfur. Fleira er á matseðillinnum saltað hrossakjöt og spik feitt saltað
kindakjöt sem hann hefur handerað sjálfur. Ós félagar munu bjóða með sér 3-4
áhugasömum köllum sem gætu hugsað sér að skoða Kiwanisklúbbinn Ós, þar sem
mottóið er maður er manns gaman. Matarverði verður stillt í hóf. Verður þetta
mikil veisla í þorra stíl með öl og floti föstudagskvöldið 17 febrúar kl 20.00.
Áhugasömum er bent á tala við næsta Kiwanisfélaga Ós.
 pastarchives
   

Páskaeggja Bingó Kiwanis

Árlegt páskaeggja bingó Kiwanisklúbbsins Ós. Páskaeggja bingóið verður haldið að venju á skírdag í Nýheimum. Verða mörg glæsileg páskaegg í boði fyrir heppna bingó spilarara. Vonast Kiwanismenn til að sjá sem flesta koma og gera sér glaðan dag og reyna að vinna egg.

Sælgætisgerðin Freyja styrkir kúbbinn með eggin í ár, eins og í fyrra, en þau hafa þótt mjög ljúffeng.

Að venju er verði spjalda stillt í hóf eð 700 kr. spjaldið, og léttur páskaleikur í fyrirrúmi.

   

Síða 1 af 12

Viðburðir

VEÐRIÐ