Rekstur knattspyrnudeildar Sindra
Skrifað af: Administrator Föstudagur, 17. október 2008 18:41
Knattspyrnudeild Sindra hefur í gegnum árin staðið fyrir umfangsmiklum rekstri. Deildin fer ekki varhluta af þeim aðstæðum sem nú hafa skapast á fjármálamörkuðum, frekar en aðrar knattspyrnudeildir út um allt land. Ljóst er að deildin verður að endurskipuleggja sinn rekstur til þess að bregðast við þeim aðstæðum sem nú eru uppi. Ef ekkert breytist mun það reynast erfittt að halda úti meistaraflokkum í þeirri mynd sem þeir hafa verið reknir undanfarin ár. Af þessum sökum hefur knattspyrnudeild Sindra markað þá stefnu að rekstur yngri flokka félagsins séu í forgangi á þessum tímapunkti.
Þjónusta við iðkendur yngri flokkanna mun því ekki skerðast. Einnig hefur verið ákveðið, miðað óbreyttar forsendur, að ekki verði farið út í neinn leikmannakostnað vegna reksturs meistaraflokka félagsins á næsta ári. Hins vegar hefur deildin fullan hug á því að halda öflugu starfi meistaraflokkanna gangandi með öllum tiltækum ráðum. Knattspyrnudeildin hefur nú endursamið við þjálfara meistaraflokkanna, út frá breyttum forsendum - og í samstarfi við aðalstjórn Sindra. Sandra Sigmundsdóttir mun halda áfram að þjálfa meistaraflokk kvenna og Hajrudin Cardaklija verður áfram þjálfari meistaraflokks karla.
Rétt er að benda á það rekstur knattspyrnudeildarinnar hefur verið aðhaldssamur undanfarin ár og hefur deildinni ekki verið steypt í skuldir. Það styrkir starfið til framtíðar þó tímabundinn lausafjárvandi trufli starfið nú um stundir. Engin ástæða er því til að ætla annað en að áfram verði rekin metnaðarfull knattspyrnudeild hjá UMF Sindra á næstu árum þrátt fyrir tímabundin skakkaföll. .
Stjórn knattspyrnudeildar Sindra
Lokahóf Sindra
Skrifað af: Administrator Sunnudagur, 05. október 2008 22:02
Markakóngur og drottning voru Kristinn Guðlaugsson og Jóna Benný.
Efnilegust voru Denis og Árdís Drífa.
Leikmenn sumarsins voru Kristinn Guðlaugsson og Sandra Sigmundsdóttir.
Til hamingju með þetta.




