Borði

Fréttir

Um 750 tonn á hverri sekúndu

Greinilega hefur dregið úr gosinu í Eyjafjallajökli en alls er óvíst hvort breytingin er varanleg. Magnús Tumi Guðmundsson var um borð í flugvél Landhelgisgæslunnar, sem flaug yfir gossvæðið í dag.

Hann segir að um 750 tonn af gosefni hafi ruðst upp úr gígnum á hverri sekúndu fyrstu þrjá sólarhringana.  Þær niðurstöður séu byggðar á upplýsingum úr þremur áttum; sýnum sem tekin voru á Mýrdalsjökli og Mýrdalssandi; af myndum sem teknar voru af sigkötlunum í gær og undanfarna daga og hversu mikið efni er þar uppfrá; og síðan sé það Gígjökulslónið, þar sem einu sinni var vatn, en nú er aska.  Um 140 milljón rúmmetrar af gjósku hafi komið úr eldstöðinni. Þetta nýtist flugmálayfirvöldum við að reikna út hvar banna eigi flug. 

 

Hestar í hættu

Halldór Runólfsson yfirdýralæknir segir að verið sé að undirbúa flutning hrossa af svæðum þar sem búast megi við öskufalli næstu daga. Dýralæknar fóru um Eyjafjallasveit og könnuðu ástand útigangshryssa.

Að sögn Halldórs voru dýrin í góðu ástandi, en ítrekaði að mikilvægt væri að dýrum yrði komið inn í hús eða flutt burt af svæðinu. Verið er að undirbúa flutning hross frá svæðum þar sem búast með við öskufalli næstu daga. og flytja hross í burtu. Hýsa þarf öll hross þar sem mikið öskufall er.  Björgunarsveitir hafa í dag aðstoðað bændur við að hýsa útigangshross og flytja þau í öruggt skjólMatvælastofnun sendir áríðandi viðvörun til bænda á öllu suður- og suðausturlandi í morgun um að þeir þurfi að vera í viðbragðsstöðu enda sé of seint að bregðast við eftir að umtalsvert öskufall er skollið á. Fram kemur í tilkynningunni að hrossum sé bráð hætta búin af því að anda að sér öskunni, drekka mengað vatn og éta hana í sig með menguðu fóðri. Sé ekki hægt að hýsa hrossin þurfi að flytja þau á öruggari svæði.Forðast skal þó að flytja fylfullar hryssur, einkum ef innan við mánuður er í að þær kasti. Sé ekki hægt að hýsa þær, skal halda þeim heima við hús, gefa þeim hreint vatn og verja fóður fyrir mengun. Verði flúormengunin langvarandi verðu þeim sérstaklega hætt við lífhættulegum kalkskorti í blóði. Einnig er mikilvægt að verja tryppi, því þeim er hættast við varanlegum tann- og beinskemmdum. 

   

Hestar í hættu

Eigendur útigangshrossa um allt land eiga nú að búa sig undir að verja hrossin fyrir öskufalli. Hýsa þarf öll hross þar sem mikið öskufall er.

Matvælastofnun sendir áríðandi viðvörun til bænda í morgun. Þar kemur fram að miðað við veðurspá næstu daga sé mest hætta á öskufalli í Rangárvallasýslu. Eigendur hrossa á öllu suður- og suðausturlandi þurfi að vera í viðbragðsstöðu enda sé of seint að bregðast við eftir að umtalsvert öskufall er skollið á. Því þurfi eigendur útigangshrossa um allt land að búa sig undir verja hross sín fyrir öskufalli. Fram kemur í tilkynningunni að hrossum sé bráð hætta búin af því að anda að sér öskunni, drekka mengað vatn og éta hana í sig með menguðu fóðri. Sé ekki hægt að hýsa hrossin þurfi að flytja þau á öruggari svæði.Forðast skal þó að flytja fylfullar hryssur, einkum ef innan við mánuður er í að þær kasti. Sé ekki hægt að hýsa þær, skal halda þeim heima við hús, gefa þeim hreint vatn og verja fóður fyrir mengun. Verði flúormengunin langvarandi verðu þeim sérstaklega hætt við lífhættulegum kalkskorti í blóði. Einnig er mikilvægt að verja tryppi, því þeim er hættast við varanlegum tann- og beinskemmdum.  

   

Lónið er horfið

Lónið er horfið. Þetta er bara einn árfarvegur niður, segir Gunnar Sigurðsson vatnamælingamaður sem var upp við Gígjökul þegar flóð kom niður jökulinn í dag. Hann segir umhverfið við jökulinn mikið breytt og sér ekki alveg fyrir sér hvernig hægt verður að komast í Þórsmörk á næstunni.
   

Reyna að setja mæli í lónið

Starfsmenn frá Veðurstofu ætla að freista þess að setja vatnshæðarmæli í lónið við Gígjökul. Þar var mælir en hann fór þegar hlaup kom í lónið á miðvikudaginn.
   

Aukin sjálftavirkni í morgun

Fjórir skjálftar hafa mælst frá því rétt fyrir klukkan 9 í morgun. Þeir eru 1 til 1,5 á stærð. Þá hafði skjálfti ekki mælst síðan rétt fyrir kl. 19 í gærkvöldi, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands. Nú er ákveðin vestanátt yfir Eyjafjallajökli. Öskufall gæti því orðið frá eldstöð og austur á Höfn í Hornafirði.
   

Aukin skjálftavirkni í morgun

Fjórir skjálftar hafa mælst frá því rétt fyrir klukkan 9 í morgun. Þeir eru 1 til 1,5 á stærð. Þá hafði skjálfti ekki mælst síðan rétt fyrir kl. 19 í gærkvöldi, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands. Nú er ákveðin vestanátt yfir Eyjafjallajökli. Öskufall gæti því orðið frá eldstöð og austur á Höfn í Hornafirði.
   

Síða 10 af 49

Viðburðir

VEÐRIÐ