Borði

Fréttir

Kona kærð fyrir árás á sambýliskonu

Lögreglan á Höfn í Hornafirði rannsakar nú líkamsárás sem varð þar í bænum á sunnudag. Kona réðst á fyrrverandi sambýliskonu sína með þeim afleiðingum að sú síðarnefnda hlaut áverka í munni.

lesa meira...
 

Hundrað hektarar brunnu við Höfn

Um hundrað hektarar af landi urðu sinubruna að bráð við Höfn í Hornafirði, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni þar. Eldurinn kviknaði laust eftir hádegi á sunnudag.

lesa meira...
   

Háhraðanetsuppsetningu frestað vegna eldgossins

Uppsetning Símans á háhraðanettengingum á vegum Fjarskiptasjóðs í Mýrdalshreppi, Skaftárhreppi og Hornafirði hófst fyrir tveimur vikum en frekari uppsetningu er frestað vegna eldgossins í Eyjafjallajökli, segir í fréttatilkynningu frá Símanum. Um er að ræða rúmlega fimmtíu bæi sem átti að tengja á næstu vikum.
   

Ekki rennur hraun úr gígnum

Enn er nokkuð öskufall undir Eyjafjöllum, bæði öskufjúk og ný aska. Hraungusur slettast upp úr gígnum en ekki rennur hraun frá eldstöðinni.

Sjö hópar björgunarsveitamanna voru í dag við störf á gosslóðum við Eyjafjöll, bæði heimamenn og sveitir frá Vesturlandi, Snæfellsnesi og Suðurnesjum. Björgunarsveitarmenn hafa annast gæslu við vegi, sinnt smölun á búfénaði og öðrum tilfallandi verkefnum. Bændur hafa verið heimsóttir og virðist staðan hjá þeim nokkuð góð.  Rögnvaldur Ólafsson  í stjórnstöð Almannavarna segir breytingu hafa orðið á gosinu. Gjóskan hafi minnkað en enn sé aska að falla ásamt því að aska fýkur til í vindi. Hverfandi líkur eru taldar á því að aska berist til Reykjavíkur jafnvel þó að vindátt breytist. Rögnvaldur segir ekki líkur á því að hraun fari að renna úr gígnum í bráð.

   

Berjast við sinueld við Höfn

Slökkviliðsmenn á Höfn í Hornafirði hafa barist við sinueld við Setberg í Nesjum sem hefur logað með hléum frá því í gær. Tugir ef ekki hundruð hektara hafa orðið eldi að bráð. Engan hefur sakað og enginn er í bráðri hættu.
   

Berjast við sinueld á Höfn

Slökkviliðsmenn á Höfn í Hornafirði hafa barist við sinueld við Setberg í Nesjum sem hefur logað með hléum frá því í gær. Tugir ef ekki hundruð hektara hafa orðið eldi að bráð. Engan hefur sakað og enginn er í bráðri hættu.
   

Ánægð með viðbragðskerfið

Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra var á ferð um Rangárvallasýslu í dag að kynna sér aðstæður vegna gossins í Eyjafjallajökli. Hún fundaði með almannavarnanefnd Rangárvallasýslu og Vestur-Skaftafellssýslu ásamt Magnúsi Tuma Guðmundssyni jarðeðlisfræðingi sem gaf álit sitt á þróun gossins.
   

Síða 9 af 49

Viðburðir

VEÐRIÐ