Miðvikudagur
Skrifað af: Ritstjórn Miðvikudagur, 22. febrúar 2012 13:27
Starfsfólk umhverfisráðuneytisins tók vel á móti okkur í morgun í fjarveru ráðherra sem sat heim lasinn. Ræddum fyrirhugaða sameiningu stofnana sem enn er í frumvinnslu. Komum því til skila að samráð við sveitarstjórnir og hagsmunaaðila alls staðar á landinu sé forsenda góðrar niðurstöðu úr ferlinu auk þess sem líta ætti á stjórnkerfi Vatnajökulsþjóðarðs sem fyrirmynd. Fengum jákvæð viðbrögð við þessu. Þjóðlendur eru einskismanns land í mínum huga, stjórnsýsla ríkisins er lítil sem engin og ég lýsti sérstökum áhyggjum mínu með framtíð þjóðlendunnar vestan Jökulsárlóns. Forsætisráðuneytið ber ábyrgð en mikivægast er að fella svæðið undir þjóðgarðinn og tryggja þannig að ráðist verði í nauðsynlegar aðgerðir.
Náttúrustofa hefur verið baráttumál okkar Hornfirðinga síðan 2007. Okkur var tjáð að verkefnið verði á óskalista ráðuneytisins í fjárlagagrð næsta árs sem gott er að vita því á morgun hittum við fjármálaráðherra.
Innanríkisráðherra hlýddi á boðskap um vegamál og áherslur okkar að bæta innsiglinguna. Óskuðum eftir fjárveitingum til þessa á samgönguáætlun. Lögðum áherslu á að sýslumannsembætti yrði á Höfn og lögregluliðið skipað að minnsta kosti fjórum mönnum. Sögðum ekki skilja þá dreifingu sem væri á lögreglustjóraembættum í dag, þar sem stutt væri á milli fjögurra embætta á Suðurlandi og tveggja á Austurland en þar milli þyrftu íbúar um langan veg að fara til að nálgast lögreglustjóra.
Niðurstaðan fyrir hádegi var því fremur óljós um árangur minn og bæjarráðsmana af erindisrekstrinum. Því varð úr að þau skömmtuðu mér einungis salatblöðum í hádegismat og lofuðu engu um kjötbita fyrr en einhverjir fjármunir væru tryggir frá ríkinu til framfaramála í héraði. Sit ég því hér með gaulandi garnir við skrifin og bið þess heitast að leiðin liggi upp á við fram að næsta máli.





